Síðasti vinnudagurinn hennar Ellu & mín hugsun !

Hún Ella mín var að klára sinn síðasta vinnudag í dag. Og mikið rosalega líður tíminn hratt. Mér finnst eins og Ella hafi byrjað fyrir svona 3 mánuðum ennnnn neibbs við erum búnar að vera vinna up close and personal í 10´mánuði tæpa.
Já elsku Ella mín....mikið á ég nú eftir að sakna þín. En svona er þetta maður verður að öðlast hærri menntun í nútímanum. Þannig ég styð stefnu þína Ella mín.....ef þú værir að hætta hérna bara til að fara fara vinna með þroskaheftum af því það er svo gefandi myndi ég taka það mjög persónulega!
Dagurinn í dag er búinn að fljúga áfram enda búið að vera ágætlega mikið að gera....Ella kom með brauðrétti & kók til að gleðja samstarfsfólk sitt hérna í deCODE :) Ég er búin að vera hugsa til framtíðar með honum Kolla um hvert við stefnum. Stefnir maður á það að búa í 101 Reykjavík og eiga börn og buru með rass úr spítu og furu eða æltar maður að halda áfram að vera UNGUR og lifa ponsu lengur! Þá meina ég sem UNGUR einstaklingur barnlaus og ógiftur!
Ég meina þó maður sé í sambúð þýðir það ekkert að maður geti ekki farið út að djamma einu sinni og einu sinni og hitt vini sína eins og maður vill!
Eitt sem ég þoli ekki eru spurningar frá fólki sem talar með svona FREAKY tón og segir " JÆJA ERU ÞIÐ EKKI AÐ FARA KOMA MEÐ EITT LÍTIÐ " eða " JÆJA HVENÆR Á AÐ SETJA UPP HRINGANA!
Ég persónulega er bara ekkert hlynnt því að trúlofa mig fyrr en ég hef tekið ákvörðun um að giftast hálfu ári seinna ( og eins og er er það ekki á dagskrá) & BARNEIGNIR eru ekki ofalega á " TO DO " listanum mínum
vá nenni ekki einu sinni að tala um þetta...af því ég veit að ég fæ einhver creepy comment frá henni Þórhildi vinkonu minni hér á Grundarstígnum !
adios
NIKITA